hýr á brá í hverri saunu
Heimaprjónaðar saunahúfur úr 100% ull

Saunahúfurnar
Engar tvær alveg eins
Húfurnar eru prjónaðar eftir minni eigin uppskrift úr OEKO-TEX® vottaðri ull og þæfðar eftir prjónið. Í þæfingunni fær hver og ein sína lögun. Fullkomnar í næstu saunu, gusu eða í pottinn á köldum vetrardegi.















Af hverju saunahúfa
Betri stund í saununni
Meiri ró í hitanum
Heitt loft leitar upp og því er höfuðið oft fyrsti líkamsparturinn sem finnur fyrir hitanum. Þæfð ullarhúfa einangrar gegn mesta hitanum svo auðveldara sé að slaka á, sitja lengur í saununni og njóta gusunnar.
Betra fyrir hárið
Mikill hiti getur tekið toll af hárinu. Saunahúfan hjálpar til við að vernda hár og hársvörð fyrir hitanum svo hárið haldi betur raka, mýkt og glans.
Hluti af hefðinni
Saunahúfan á rætur í finnskri saunahefð þar sem fólk hefur í kynslóðir notað þæfða ull til að mýkja áhrif hitans og njóta saununnar til fulls.
Náttúruleg ull
Húfan er gerð úr 100% ull sem einangrar vel og andar. Garnið er OEKO-TEX® vottað, prófað fyrir skaðlegum efnum og öruggt við húð. Ullin þarfnast sjaldan þvotts og oft nægir að leyfa henni að þorna vel eftir notkun. Þegar tími er kominn á þvott skaltu handþvo hana með mildri ullarsápu, móta hana varlega á meðan hún er rök og láta hana síðan þorna upprétta.
Litir
Veldu þér lit
Prófaðu litina á húfunni og veldu þinn uppáhalds.
Þarftu stærri eða minni húfu en venjulega? Hafðu samband við mig eða taktu það fram í pöntuninni.
Pöntunin þín
Sendu mér pöntunina í tölvupósti, eða afritaðu hana og sendu mér á Instagram eða Facebook.
Þæfing getur dekkt og mýkt litina aðeins.

Um mig
Ég heiti Hildur Ýr og prjónarnir fylgja mér hvert sem ég fer
Amma mín kenndi mér að prjóna þegar ég var lítil og síðan hef ég varla setið auðum höndum. Prjónarnir fylgja mér í sófann, í bíó, í bílinn og ferðalagið. Það veitir mér fátt meiri gleði og ró en að skapa eitthvað með höndunum.
Fyrstu saunahúfurnar prjónaði ég handa fólkinu mínu. Svo fóru vinir vina að spyrja hvar þær fengjust, og þá varð Hýr á brá til. Ég prjóna hverja húfu sjálf og núna fyrir þig!
Pöntun
Svona færð þú þína húfu
Sendu mér skilaboð
Hafðu samband við mig, hvernig sem þér hentar.
Veldu þér lit
Segðu mér númerið á litnum úr litaúrvalinu.
Fáðu húfuna þína
Ég prjóna húfuna, þæfi hana og kem henni til þín í fallegum umbúðum, eða þú sækir hana til mín.
Ónotaðri húfu má skila innan 30 daga.
Ef þú býrð úti á landi sendi ég húfuna til þín og þú greiðir sendinguna.
Spurt og svarað
Gott að vita
Hvað tekur langan tíma að fá húfu?
1–2 vikur. Biðtími getur verið lengri og þá læt ég þig vita þegar þú pantar.
Passar húfan öllum?
Ég prjóna húfurnar alltaf í one size fits all stærð, en það má auðvitað biðja um aðeins stærri eða aðeins minni húfu ef þú telur þig þurfa það.
Má fara með húfuna í pottinn?
Húfurnar henta einnig vel í pottinn á köldum vetrardegi til að halda hita á höfðinu eða skýla sér fyrir úrkomu. Húfurnar mega blotna, en ef þær verða gegnumblautar er best að láta þær þorna uppréttar.
